Gylturnar

*oink oink*

23.12.2006 03:15:23 / Hannan

Ekki minn dagur

Ég er mætt heim frá London eftir æðislega ferð. Það er erfið vinna að vera í búðum allan daginn, skemmtilegt svona oftast, en eerfitt. Ég gerði enginn massa kaup, ótrúlega dýrt í London og keypti ég því aðallega nokkra stóra hluti sem ég er mjög sátt með. Ég var stoppuð á götunni og gaurinn hélt upp spjaldi sem á stóð "Zebra" og sagði mér í löngu máli hver hann væri, eitthvaðeitthvað Zebra model agency, var nú hálf hrædd við hann þannig tók ekkert svo vel eftir. Allavega spurði hann mig hvort ég væri að vinna fyrir e-ð model agency og ég neitaði og hann spurði hvort ég hefði áhuga, og ég bara starði á hann eftir ræðuna hans og hann bara "you can come if you are from the UK, you are from the UK right?" ég bara no, ég labbaði í burtu. Skemmtilegt það, hefði getað orðið model... hahahahaha...

Allavega. Mér er nú ekki hlátur efst í huga í augnablikinu, þó ég hafi reyndar verið hlægjandi fyrir 10 mínútum en mér finnst það tilefni nú eiginlega ekkert voða fyndið lengur. Þannig er mál með vexti að ég var að skrifa jólakort með bleikum glimmerpenna, og horfa á mynd í sjónvarpinu sem fékk síðan alla athygli mína. Ég var svona að smella lokinu á pennan á meðan ég horfi og einnig í sjálfan mig, svona loka pennanum með því að ýta honum í hliðina á mér. Vona að þetta skiljist, en allavega, lýt ég alltí einu niður og neih daaaginn, lokið er vitlausu meginn, penninn er opinn. Ég lýt á nýju Levis buxurnar mínar og þrátt fyrir að þær séu dökkar, þá eru þær bleeeeiikar á hliðinni, allar í penna. Looovely, fannst þetta nú hálf skondið, nefndi þetta ekki við mömmu og sótti tuskuna. Var svo í óða önn að þurrka buxurnar með fínum árangri og lýt í spegilinn, daaaaginn, gráa peysan mín er BLEIK á hliðinni ööööll í pennastrikum. Mér fannst þetta óótrúlega fyndið og fer að flissa og enda skellihlægjandi með tuskuna í bleiku peysunni og mamma bara "hvað er svona fyndið?" en ég tilkynnti henni að henni finndist þetta líklega ekki jafn fyndið og mér, sem var mjög rétt hjá mér. Hún tilkynnti mér að þetta næðist ekki úr og heeyy peysan er núna í biotex meðferð og sjáum svo bara hvernig hún endar. Flott hjá þér Hanna, vhúpíí.
Þetta er ekki eina fyndna slysið mitt í dag. Hvíta úlpan mín var ansi skítug eftir London og svona hálf svört, þannig ég skellti henni með góðum hug í vélina í dag. Þegar ég kem valhoppandi að þvottavélinni, dáist í huganum að húsmæðragenum mínum, sé ég aðskotahluti í glugga vélarinnar og mundi "shii gleymdi að tæma vasana!". Nújæja, það ætti nú ekki að skaða neinn, eitt gult karmellubréf til eða frá. Nema hvað, þegar ég tek úlpuna út, þá er hún ekki hálfsvört lengur, og jújú hún er tandurhrein - en heldur ekki hvít. Hún er GUL!! Daaaginn, fallega gul bara alveg að fýla sig í tætlur. Mér fannst þetta nú ansi skondið og skellti henni bara aftur í vél. Sem bar btw engann árangur.
Þannig hey, ég á alltíeinu tvær nýjar flíkur. Gula úlpu og gráa peysu með bleiku munstri. Ljómandi fínt, voða jólalegt og svona :$

Annars er allt innpakkað að minni hálfu. Engin jólakort skrifuð, er að vinna í því. Ekkert búin að bera út og pabbi minn sendir btw svona 3 tonn af jólakortum á Akranesi sem ég þarf að hlaupa með í hús. Ekkert að því fyrir utan, hafið þið litið útum gluggann? Svo fer ég með gjafir til Reykjavíkur á morgun og svona, ótrúlega kósý að taka Þorláksmessu-göngtúr niður laugarveginn í þessar blíðu, maður yrði rétt rakur í úðanum og ný hárgreiðsla mundi brjótast fram í golunni, haaa einmitt.

Svo hef ég atvinnutilboð, einhver í góðu formi með einhverja badminton reynslu sem er búinn að hreyfa sig oftar en einu sinni seinnasta mánuðinn, óskast. Í starfinu felst æfingabúðir milli 27.-30. desember, mest 3 tíma æfingar, annars bara 1oghálfur tími. Nóproblemó. Eitt tínívíní thing, þarft að svara köllum undir nafninu "Hanna" meðan á starfsferli stendur. Umsóknir óskast í komment. Takk fyrir.

Gleðileg jól gott fólk =*


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 02:11:21 / Hannan

Londoon :]

mmm... sjáumst 20. des elskurnar :] im off to Loooondon :haha:

Good times people :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 01:12:28 / Hannan

Jólaskap :)

Svart var orðið frekar þunglynt. Ég er ekki þunglyngd, ég er jólalynd. Jólaskapið mitt svoleiðis sveif yfir mig þegar jólalögin voru á fóninum og mamma að rífa upp jólaskraut og hápunkturinn kom þegar ég bragðaði á piparköku, og annari, annari, o.s.frv ;) Ég og Karitas fórum líka jólaljósa-skoðunar-rúnt í nótt, ótrúlega kósý. Flokkuðum öll jólaljós bæjarins í flott og ljótt, skær marglit ljós eru ótrúlega falleg í mínum huga, dauf marglit eru ekki að gera sig.

Prófalestur dagsins var mjööög takmarkaður. Svaf til 14:30, maður sefur ekkert til hálf þrjú!! Ég er náttúrulega bara eitthvað vaan, gerði þetta seinast í seinustu prófum líklega. Og samt var ég þreytt, var bara óótrúlega þreytt það sem eftir var dags og hef ekki farið útfyrir dyr, tííhíí.
En á morgun er nýr dagur og ég mun læra, er að fara í tvö próf á föstudaginn og ég er ekkert búin að vera sú duglegasta í vetur og vetrareinkunnin í tölfræði ekki uppá marga fiska miðað við alla hina, svona er að vera 3 vikur í burtu úr skóla.

Komum Ragnheiði á óvart með því að gefa henni nokkra hluti í herbergið sitt í afmælisgjöf og svona, óótrúlega fínt kort í boði "föndursnillingur og co." - a.k.a. Ég, nanna og Elín :haha: Þetta var mjög kósý og hún var vonandi ánægð. Mér finnst svo gaman að gefa gjafir... og líka ágætt að fá svosem ;)

Jólaballið var bara skemmtilegt, maður gat nú orðið asskoti pirraður á fulla fólkinu en aðallega í röðinni, annars var það ekkert svooo mikið fyrir manni ;) En ég dansaði bara af mér rassinn, lék tígrisdýr fyrir myndavélina og svona fleira eðlilegt ;) Fór svo grúúútþreytt á landsliðsæfingu snemma morguninn eftir. Karitas og Birgitta voru að dimmitera, ótrúlega sexy deevils ;)
Svo átti stærðfræði hug minn allan, ég, Agla og Almar áttum rómó stund í grundó að læra :Þ
Annars gekk stærðfræðin ekki eins vel og ég hefði viljað, er með 30 % vitlaus, og svo eitthvað sem ég hef líklega klúðrað. Þetta er engin 9-ja eins og í fyrra. Vá hvað sú 9-ja verður algjörlega útúr kú í stærðfræðieinkununum, 7-7-7-9-7-7-7... vandróóó ;)
Gangi ykkur annars vel :]

Svo er það London 16. des, hversu ljúúúft verður það :D

 Hanna Tiger María
:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 01:35:34 / Hannan

Fleh

Ég sem ætlaði að hætta með þetta "hóp" blogg. Ragnheiður ætlaði að blogga hér við og við, gerir hún það? Nei. Karitas, þessi fáu bloggskipti hennar eru týnd og tröllum gefin. Bloggaði Lilja einhvertíman? Nei. =]

En þar sem ég er ekki búin að læra PUNKT í dag, og er að fara í þýsku færnispróf á morgun sem gildir 20% og 10% próf í uppeldisfræði. Þá sit ég hér og finnst það bara fínasta hugmynd að blogga. Það vantar eitthvað í þennan ófríða haus minn svo mikið er víst. Allavega metnað og sjálfsaga, svo eilítið sé nefnt. Ég var einmitt að hugsa það í dag í skólanum þegar ég fékk fallega 9 í sögu, hvað það væri nú gaman að hafa svolítið fyrir einkununum því þá gengur manni vel, hugsaði meira að segja að ég ætlaði sko aldeilis að læra fyrir próf hér eftir. Það gekk svona líka ljómandi vel.

Æj, skítt með það. Ég fæ þá bara 6 útúr þýsku áfanganum, fyrsta 6-an mín í áfanga eever, fjandans mórall. En ég átti yndislega msn stund í kvöld eins sorglegt og það nú hljómar. Þeim aðila verður bara alfarið kennt um öll blómin sem munu prýða þýsku prófið mitt á morgun, svona til að nota blýið í eitthvað.

Ragnheiður á afmæli á fimmtudaginn, oh hún er svo eftir á konan. Ótrúlega sein með trendið, eitthvað að verða 18 núna. Skil ekkert í henni að vera ekki búin að þessu. En það verður ógó skemmtó skiluró!! ...smá móment!
En ég hlakka allavega til föstudagsins, dimmisjón (sem Karitas tókst nota bene ekki að troða skoti á mig í þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir - miður mín), jafnvel teiti, og svo ball. Og svo landsliðsæfing kl. 9 daginn eftir - jeij.

Allavega, það er nú lágmark að renna yfir uppeldisfræði glósur. Þar gengur mér sæmilega en ég verð samt að læra til að ganga vel. Svoleiðis gerði ég ekki. Æjæj.

Bloggin mín fjalla alltaf um lærdóm. Orðið sorgleg flýgur uppí hausinn, en það passar náttúrulega ekki þannig við látum það bara fljúga burt ;) ...*fjúfffjúfffjúff*


Manna Haría


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 16:48:11 / Hannan

"My love"

Algjörlega elska þetta lag með hinum heita Justin Timberlake

Because, I can see us holding hands

[Because, I can see us holding hands
Walking on the beach, our toes in the sand
I can see us on the country side
Sitting in the grass laying side by side
You can be my baby
Let me make you my lady
Girl you amaze me
Ain't gotta do nothin crazy
See all I want you to do is be my love]


Ég er bara búin að vera, einhverstaðar, Kristín mín þessvegna er ég ekkert búin að blogga. Og ég hef mínar grunsemdir um magn þeirra sem lesa þetta og blogg, og skulum við bara segja að það sé ekkert í tonnatali neitt ;)

Annars er ótrúlega lítið í fréttum af mér, sakna þín Kristín mín að sjálfsögðu :] Ég er að standa mig í skólanum að sjálfsögðu. Eftir veikindin þá tók einhver asna ritgerð alla athygli mína [fékk 9 fyrir hana] og tók athygli frá öðrum fögum sem gerði það að verkum, eins og áður hefur komið fram, að ég fór að skila mjög fáorðum prófum, eiginlega auðum þar að segja. Í sögu fékk ég = 1, í tölfræði = 1,5 og í þýsku = 2,2. Klárlega sorglegasta einkunna vika mín til þessa. Svo er ég búin að sofa yfir 2 tíma í þessari viku. Stórkostlegt. Og prófin eru <-> svona stutt í burtu. jeeijj.

Ég nenni engan veginn að vinna formið og krafta upp aftur. Neeenni ekki. Iceland Open - stórt mót með útlendingum, var um helgina og ég keppti við einhverja ofur konu, ótrúlega skemmtilegt. Badminton og Lærdómur framundan bara, vúhú.

Mig langar svo óótrúlega til London, en það virðist ekki ætla að ganga upp. Mig langar svo að fara að versla, skoða jólaskrautið og kaupa jólagjafir. Ég einfaldlega nenni því ekki á Íslandi. Ég hlakka samt til jólanna, þau eru alltaf svo krúttuleg eitthvað.

En núna verð ég að fara að þjálfa lítil kríli, reyndar er flokkurinn sem ég þjálfa í dag ekki beint kríli, meira svona jafnaldrar sumir, en hey ;)

Eitthvað innihaldsríkara verður að bíða betri tíma, annars er ég svo ótrúlega tómur persónuleiki að það er spurning hvort það komi einhvertíman.
Hanna María námshestur með meiru !


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 18:15:53 / Hannan

myndiir :)

Ég vil byrja á því að biðja hana Karitas afsökunar en hún er mjöög reið. Vegna þess að í blogginu hér fyrir neðan, skrifað klukkutíma áður en hún sótti mig, stendur að ég sé að fara út að borða með Birgittu og Atla. Ég var einnig að fara með Karitas en einhvernveginn tókst mér að nefna hana ekki, pottþétt strokast óvart út bara ;) Svo var hún voða dugleg að heimsækja mig þegar ég var veik og var voða góð, fita mig og svona. "Þú kaupir þér VÍST ís Hanna!! Mér er sama þó þér langi ekki í!!" tíhí. Hún getur víst ekki kommentað á tölvunni sinni, kjánalegt.



Svona var Karitas þegar ég mætti henni í morgun, tók mig sko á teppið konan. En hún er þó alltaf tælandi, því verður seint neitað.

Annars hef ég sjaldan verið jafn læri dugleg og ég dag. Lærdómurinn fyrir daginn í dag var eftirfarandi:
-Sögu próf - lesa 82-146
-Þýsku próf - úr seinasta hluta Im Irrenhaus
-Skila hefti í landafr. - 21 spurning
-Skila 3 verkefnum í uppeldisfr.

*Svo átti ég að skila ritgerðinni í landafræði, virkjun vinds - 2000 orð + glærushow, á sunnudaginn. Var að því til að verða 4 í nótt (byrjaði svona... í seinni kanntinum :$) kláraði hana loksins og gerði ekkert af hinu. Kom með afsökun fyrir seinum skilum og það reddaðist.
*Þýskuprófið reddaðist ekki, manni gengur víst illa ef maður er ekki búin að lesa punkt af tilteknum texti. Ég sýndi það vel og skeit uppá bak.
*Landafræðiheftið varð að skilast í dag og gildir 16% og enginn frestur, byrjaði á því í hádeginu og skrópaði í stæ til að klára. Tókst, skilaði því :]
*Fór í sögupróf, ekki búin að mæta í sögu í 3 vikur, las ekki staf sökum ritgerðar og átti engar glósur og hafði ekki tíma til að redda mér. Gerði eina spurningur sem var að raða í tímaröð, fullkomið gisk þar á ferð. Skilaði annars auðu. Frekar vandræðalegt, setti blaðið á borðið og hljóp út.
*Kláraði uppeldisfræðiverkefnin eftir skóla og skilaði. Gerði meira að segja eitt auka verkefni meðan ég beið eftir að vera sótt sem á ekki að skila fyrr en á fimmtudag. Dúleg :]

Mig langar að kíkja til Ragnheiðar í kvöld. Ég má samviskulega séð, ég er búúúin að læra í fyrsta sinn í öld og það er ekkert meira fyrir morgundaginn :haha: -ætla pottó að kíkja :]

Góð helgi annars, landsliðsæfingin hörmung þar sem ég gat ekki andað djúpt né slegið yfir allan völlin en ég meina, það er heitt. Kvöldverðurinn og bíóferðin á föstudag með Karitas, Birgittu og Atla var voða kósý. Svo héldum ég og Atli í rómó vídjó á nýja 42" sjónvarpinu þeirra með Guðjón Þórðar staddan í sófanum líka ;]
Hitti líka Eygló í hádegismat og laangan rúnt. A lot of catching up to do, frábært alveg hreint. Gaman að hitta hana :] Svo fékk Jason líka eitthvað af nærveru minni ;)

Mér finnst gaman að blogga núna, en ég blogga samt svo algjörlega tilgangslaust.
...óóóótrúlega þreytt núna þannig ich bin búin :*

ahhh gleymdi næstum pointi bloggsins. Ætla að opinbera myndirnar úr Þýskalandi, ætlaði alltaf að skýra allar, en það er viiinna þannig það er bara skrifað við lítinn hluta og þið skuluð gjöra svo vel að lesa þetta!
Gjörðusvovel Hrefna mín, afsaka biðina ;)
http://photos.yahoo.com/hannamariag

Þetta eru tvö albúm frá Evrópuskóla æfingabúðunum í Þýskalandi í sumar. Textinn er á ensku fyrir útlendingana, ekki hlægja :] Feel free tú skoða, view slideshow er best ;)

Ekki hætta að skoða þó þetta sé fyrsta myndin. Það var nótt og svona myndast víst sparibrosin þá skiljiði ;)
-Hanna hin heita- ;)




» 2 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 15:40:02 / Hannan

Vöknuð til lífsins

...vona að mestu leyti allavega. Allavega komin uppúr veikindunum, loooksins. Samt ennþá frekar sofandi, þreeytt alltaf. Kannski því ég fer ofur seint að sofa? enda ofur hörð :$ Allavega, ég mæli sterklega ekki með streptókokkum, en nú get ég ANDAÐ og ég get KYNGT! Þið getið varla trúað hvað það er yndislegt. Annars tók ég mig til og léttist, sést nú samt ekkert, losaði mig við vöðva (mátti svo svakalega við því - kv. Arnold S. aka ég) og kemst núna í uppáhaldsbuxur sem hafa verið að rykfalla leeengi. En maður er svo sem ekki lengi að kippa þessu í liðinn, sérstaklega ekki með Karitas sér við hlið að skipa manni að éta meira. Ég var rétt komin með lystina og við skelltum okkur út og hún bara "þú ætlar VÍST að fá þér ís!!! og nammi!!!" Hún hefur btw alltaf rétt fyrir sér, vinnið eitt stykki fyrirlestur með henni og þá komist þið að því ;)

Ég lærði ekki punkt í veikindunum. Ég gat það náttúrulega ekki :) hehe hefði svo sem getað dritað einhverju niður á blað seinustu 2 dagana, en neinei það var einfaldlega of erfitt. Þannig nú á ég ennþá eftir að gera þessa blessuðu 2000 orða ritgerð um virkun vinds. Hversu leiðinlega leiðinlegt getur eitt verkefni verið? Annars tók maður próf og annað í dag og svona, ég er ekki að gera mig í skólanum þessa dagana. Get nú samt ekki kennt veikindum og Slóvakíu alfarið um það. Leti á svona, tjah smá hlut, samt bara smá :$

Ég var meira að segja að fá áminningu fá landsliðsþjálfaranum um skýrslu sem ég átti að skila um Evrópuskólann í Þýskalandi í sumar, ég get ekki einu sinni drullast til að gera það.
Fer einmitt á landsliðsæfingu á morgun, það verður spes. Var komin í toppform, maður bætir sig alltaf í svona hardcore æfingabúðum og kemur með metnaðinn í lagi og einbeitningu í hámarki heim, ásamt því að ég var loksins farin að bæta smá vöðvum á mig að mér fannst. Þetta er allt farið. Ég verð móð af því að fara upp tröppurnar í skólanum, fæ bara hraðan hjartslátt og læti, tekur svo á. Einnig er virkilega erfitt að fara niður stigann því fæturnir á mér eru bara eins og hlaup. Skemmtilegt það. Mjöög bitur yfir þessu.

Ég, Birgitta og Atli ætlum að skella okkur smá útað borða og í bíó í kvöld. Það verður kósý :) Svo er systir mín búin að bjóða mér í innflutningspartý annað kvöld. "Ert þú nú ekki orðin fullorðin? Verð ég þá ekki að bjóða þér í partý með mér og vinum mínum?" hehe, þetta verður athyglisvert. "Já ert þú orðinn læknir? Já ég er einmitt hérna á þriðja ári í menntaskóla, alveg að ná þér *kýlaíöxl* ;)" ...pottþétt. Grunar samt að það eigi að nota mig í skutl og hjálp við veitingar :)

Bjarnþór hélt uppi heraga í dag, skárra skapi en morgunfýlan í honum í gær. Hann var að lesa upp í annað sinn og segir "Hanna" og ég svona "Ha? Hanna? Þú ert búinn að merkja við mig!" og hann bara "ah já ég meinti Agla!" ...haha það er nefninlega svo líkt? Honum finnst við jafn "skemmtilegar" ég og Agla. Hann sagði á svona 2 sek fresti í dag, "Hanna lærðu!!" Einnig sagði Viðar Bjarnþór við Viðar "ég hélt þér líkaði betur við okkur en stelpurnar" - við verðum fyrir aðeins meira áreiti en þeir, viðurkenni það. Og Bjarnþór bara "Neinei það er jafnt á munum, þið eruð alveg jafn latir og þær!" ..Tík!

Bjarnþór foxy stærðfræðikennari og besti vinur ;)

...Þegar maður er farin að skrifa heila klumsu um stærðfræðitíma þá fyrst hefur maður ekkert að segja, og ég tala nú ekki um á sér ekkert líf.

Kveð því að sinni og óska ykkur góðrar helgar :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 01:42:48 / Hannan

:)

Gohh, þá liggur það ljóst fyrir. Guðbjartur Hannesson er mjög líklega á leiðinni á þing. Eða, er á leiðinni á þing þar sem hann vann 1. sæti í prófkjörinu :) Hann var í fyrsta sæti í fyrstu tölum, og mamma Imagevar bara "þetta eru bara 150 atkvæði, þetta er ekki neitt, ekkert að taka mark á þessu, þetta er ekki neitt, af hverju eru þau að birta þetta?" hehe.. svo bara hélt kallinn þessu ;)

Óska honum bara til hamingju, ég held að hann eigi þetta alveg skilið. En erum við þá að tala um að hann hætti sem skólastjóri? Það er víst, og það er ansi spes. Ég hætti þá að vera skólastjóradóttir, hef heyrt það ósjaldan get ég sagt ykkur. Þingmannadóttir, fleeh ;)

Allavega, tilkynnti pabba að hann þyrfti að kaupa kellingabíl handa mér og mömmu núna. Hann má eiga traktorinn (opelinn með yndislegu hljóðinn) á þingið. tíhí :)

Annars eru streptókokkarnir enn í fullu fjöri. Og puttarnir ennþá í hámarki kynnþokkans, að detta aaaf. Það er svo erfittkyngja að þið trúið því ekki. Ég er í baráttu á hverri mínútu sko. Svo kemur þessi líka bjúútífúl svipur þegar ég kyngi sko, oh sexy. Greyið Jason búinn að þurfa að horfa á mig í allan dag, sveeekkjandi :D
Svo get ég heldur ekki andað, nefið mitt er bara - neineinei.

Fór með Jason á elliheimilið að heimsækja 96 ára gamla ömmu mína. Höfðum ekkert að gera og ég var með svo mikinn móral yfir að fara aldrei til hennar þannig við skelltum okkur. Veel skrautlegt þar sem ég vann þarna í sumar og þekki alveg til fólksins og svona, okkur var óskað til hamginju að vera saman og spurt hvort við ættum börn. Ég sat og sagði "já" bara því það voru 3 að tala á sama tíma og enginn kippti sér upp við að hinir voru að segja eitthvað líka, aukaatriði ;) Jason fékk sömu söguna svona 70 sinnum meðan ég einbeitti mér af því að tala við ömmu, tííhíí.

Annars ætti ég kannski að skella mér í háttinn, væri ekki vitlaust. Og á klósettið, þarf að drekka vatn í hvert skipti sem ég þarf að kyngja. Það hefur sínar afleiðingar get ég sagt ykkur, iiða í stólnum. Ég er smekklegt, ég veit ;)
Mikill lærdómur á morgun sem ég verð að gera. Ljóta drasl.

HaNNa NefMælta kveður, takið eftir N-um og M-um þar sem ég stranda á þeim í talmáli, tíííhíí :)

P.S... ATH: einnig vil ég geta þess að Ragnheiður kíkti í heimsókn til mín þegar ég var í einmannaheitum mínum og einnig kíkti Hinrik líka til mín. Þannig við vorum þrjú og áttum mjög rómantíska kvöldstund saman, horfðum smá á "joey" og skemmtum okkur vel :) Þakka samveruna og bíð eftir one tree hill hitting Ragnheiður mín ;)
P.P.S... ég er að borða kúlur (finn reyndar ekkert rosalegt bragð af þeim en hey) og ein bara þeittist uppí loftið og lenti á milli brjóstanna á mér :lol: Þetta fannst mér fyndið. Ég er ekki sorgleg nei, alls ekki.


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 12:16:19 / Hannan

væææl

Ekkert smá yndislegt að vera ennþá veik /kaldhæðni lokið. Ég fór til húðsjúkdómalæknis í gær. Drattaðist til Rvk með mömmu og var nú bara frekar fersk fyrir utan að ég er búin að borða svo mikið sem ekki neitt þessa viku þannig orkan var ekki mikil. Læknirinn komst fljótt að því að puttar og tær væru að flagna af mér því ég væri líklega með streptókokka. Er þá búin að vera með vírusinn í mér lengi og fékk hálbólguna svo ekki af viti fyrr en fyrir svona 3 dögum og er hún einmitt í hámarki núna. Dinglumdanglið í hálsinum er svona sjöfalt og það er vooont að kyngja. Puttarnir á mér eru ógeðslegir, ég er ógeðsleg. Er núna fyrst aðeins að jafna mig og það er föstudagur, er samt alveg frá af hálsbólgunni og kvefi. Vakna alltaf um miðja nótt og á bara virkilega erfitt með að sofna aftur. Svo í morgun þá vaknaði ég með hægri öxlina alveg vaaan, hef sofið eitthvað asnalega á henni og er iiillt. Er núna með hitapoka á henni. Hvað segiði, mót á morgun? :$
/væli lokið.

Ég varð móð af því að borða pizzu í gær. Það var upplifun. Ég verð skrautleg á badmintonvellinum. Var komin í frekar gott form eftir Slóvakíu held ég, en neinei það er svo allt ónýtt. Hefði verið virkilega tilbúin að keppa almennilega í þessu móti, búin að vera úti og æfa svo áfram heima og svona. Því það vantar allar þessar sem rústa manni (mér allavega) alltaf, Tinnu, Halldóru og Rögnu.

But there is no point in crying over spillt milk :) ...eins og einn ágætur færeyingur mælti.

Jason var eitthvað að setja út á stafsetninguna hjá mér í blogginu á undan. Honum fannst eitthvað erfitt að lesa það, tregi drengur. Og það stendur ekki "heimSferð" eins og þú sagðir heldur "heimferð" eins og ÉG sagði, eitt - núll ;) Eina villan sem ég sé er að það vantar eitt N í skólinN í eitt skipti. Miður mín.

Ég nenni ekki að læra. Þarf ennþá að læra allt.

Mér leeeiðist svo að þið trúið því ekki. Það er hreinlega ekkert hægt að gera. Ég neenni ekki að læra, ekki beint það mest freistandi.

Jæja, farin að vorkenna sjálfri mér. Kveðja sjöfalda dinglumdanglið.


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 22:11:18 / Hannan

heeeeiitt

  • ligg hérna í kynþokkafullu svitakófi, í svona sjöþúsundasta sinn í dag.
  • þannig er mál með vexti að ég er einmitt veik
  • fer bara versnandi ef eitthvað er
  • er núna með 38,8 og sé eiginlega ekki skýrt
  • en ég er samt að berjast við að vera í tölvunni. flooott
  • það er svo vont að liggja útaf bakinu, get samt ekkert annað. Kom niður hálfum banana áðan, dúleg
  • Slóvakíu ferðin var mjög skemmtileg.
  • föstudagurinn var með erfiðari dögum lífs míns, nenni ekki að útskýra frekar.
  • heimferðin var ljómandi skemmtileg.
  • ég er svo feitt eftirá í skólanum. Var í því að senda kennurum email í gær og dag, djamm
  • mót um helgina. sjáum til hvort maður komist á það, vonandi samt.
  • eeen ég hef ekki orku í meira takk
  • gaman að vera komin heim. takk fyrir að heilsa uppá mig Ragnheiður og Birgitta :*
  • "hlakka" svo til að koma í skólann að sjá hina, þó skólin sé mjög langt frá því að vera tilhlökkun
  • farvel :*

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 14:04:53 / Hannan

Hanna Mistok Gudbjartsdottir

Thats my name. Eda allavega a fyrstu aefingunum ta var tetta hriiikalegt. En tetta er nu farid ad skana. Eg held ad sjalfstraustid se lika adeins ad skana, to eg se med teim lelegustu herna ta getur madur nu eitthvad. Og madur er alltaf ad gera aefingar med nyju folki tannig madur reynir og reynir. En eg er buin ad finna astaeduna fyrir tvi af hverju hinir eru svona miklu betri en eg. Tau aefa miiiklu meira. Nanna fra Finnlandi og er med mer i herbergi, hun er 15 ara og er tussu god!! En hun svona, eg skil ekki af hverju vid aefum bara 4 tima a dag. Og Karoliine fra Eistlandi er lika drullu god, med teim bestu og hun finnur ekki fyyyrir tessu sko. Eg svona jaaaa einmitt, algjorlega sammala, host host. hehe :)

Annars ta er eg ad fkn DEYJA ur harsberum. Svona an grins ta er bara virkilega erfitt ad labba, og eg tala nu ekki um troppur!! Og rumid mitt er svo hart, eg vakna a morgnanna og tad er svo erfitt ad fara framur sko shiii. En eg fer ekki i morgunmat, sit bara grutmyglud og borda braud med sukkuldi. Tordi ekki ad stela hnif tannig eg difi bara ofani, hehe. Borda samt banana fyrst, goosh svo holl :P
En stelpurnar eg, Hanna og Karoliine erum alltaf saman. Allavega eg og Nanna tvi vid erum roommates og svo saman a aefingum. Eg er ekki med Atla a aefingum oft. En Brynhild fra Faereyjum er lika oft med okkur en eg er betri en hun, JEIJ :D haha... En allavega, stelpurnar sko finna ekki fyrir harsberum, finna ekki fyrir neinu. Og eg svona hey wrooolegar, eg tarf ad standa upp!! Og tid truid ekki hvad er erfitt ad krossleggja faetur sko, shiii. Vid erum ad tala um ad tad er hva, midvikudagur? og eg a eina aefingu eftir i dag og svo eru 3 aefingar a morgun og svo mot a fostudaginn. Og vitidi hvad eg fae ad gera a fostudagskvoldid?? kl 19 til 21...wait for it, wait for it...
PHYSICAL TRAINING.. og vid erum metin, physical evaluation... JESS.... passid ad missa ykkur ekki ur ofundsyki, mmmhmm!!

Annars eru spilararnir her mjog finir. Eg og finnska stelpan Nanna naum mjog vel saman. Vorum einmitt a aefingu i morgun og svo forum vid i kvold. Tad er buid ad skipta i 3 hopa og svo erum vid a misjofnum aefingum. Eg er ALLA morgna, hversu mikid svekk er tad. Goosh, Atli fekk ad sofa til 12 i gaer, heeelv. pikan :P
En i dag ta hofdum eg og Nanna the afternoon free, akvadum ad skella okkur i nidrur i bae. Erum vid ad tala um ad tad se EKKERT herna eda ja?! Svona an grins. Looong gata, med storfurdulegum budum. Tetta er rugl sko, hevi weird fot og svona. Folkid fra Slovakiu sem madur ser er like midur myndarlegt verd eg ad segja. svekk :P
Svo akvadum vid ad skella okkur a kaffihus, hevi girnilegar kokur. Svo skodadi eg aadeins nanar ta voru taer ekkert svo girnilegar, en jaeja akvadum ad fa okkur samt. Jeeesus, tvilikur objodur. Sat i hlaturskrampa sko tetta var svo vont... haha. Tad er freekar erfitt ad finna eitthvad gott vid tennan stad sko. Hotelid er hevi lelegt, lifturnar djok og svona gaman :)
Eg er strax ordin tekkt fyrir ad vera lengi, vera alltaf kalt, og borda mikid ohollt af stelpunum sem eru med mer, hehe. kemur  a ovart :P

Annars eru spilararnir mjog skemmtilegir. Madur kynnist agaetlega. Tjalfararnir eru lika nice. En madur faer ekkert svaka lega mikla hjalp, tetta er svo mikil keppni. Teir eru bara ad labba um og skoda mann, hevi mikil pressa. Hinar stelpurnar eru i svo mikilli keppni tvi taer eiga alveg godann moguleika a ad komast afram. Eg veit alveg ad eg kemst ekki afram, eg er ekki bara ad segja tad. To ad eg se alveg svipud nokkru, ta eru svo margar sem eru alveg rust godar. Strakarnir eru samt betri, margir mjooog godir. En allavega, stelpurnar eru ad reyna ad finna ut hvernig er best ad vera og svona, blanda gedi vid tjalfarana og svona. Svo a tetta ekki ad snuast um  ad vinna endilega, frekar ad reyna ad nota tad sem vid laerum og svona. En mikil keppni og mikil pressa. En eg reyni ad hugsa ekki um tad, enginn tilgangur i tvi :)
Mer fannst nu samt alveg otarfi ad segja fra tvi ad naestu aefingabudir sem verda i februar, eru i Madrid a Spani. Bara helmingur fer tangad. Sveeekk.

Eeen nu eru tid buin ad fa hugmynd um hversu sorglegt tetta er, eg ad blogga massa langt blogg um eitthvad sem enginn hefur ahuga a. Sveekk :)
Finn samt ad tad er ekkert verid ad missa sig ur soknudi, Karitas lifir allavega agaetlega an min heyrist mer *blikkblikk* Ta sakna eg bara Birgittu meira :P og Ragnheidi of course. Hugsa til tin i ollu tessu nemendaradsveseni elskan, stendur til vel :) Ballid verdur natturulega ekki eins an min, en eg meina, you have to do your best without me hon *blikkblikk*

En jaeja, faaarin. Ef eg get stadid upp allavega. Svona an grins ta nadi eg i taernar fyrsta daginn, en tad er lidin tid.

Sakna ykkar elskurnar :*:*:*


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 17:58:09 / Hannan

svaaaalt

Erum vid ad tala um ad eg se a netkaffi i Slovakiu eda ja :D Tad er meira ad segja fritt ad vera herna. Allt mjog odyrt her, engin aefing hja stelpunum i kvold tannig eg og nanna og karoliine, fra finnlandi og estonia eru med mer og vid roltum i baeinn. Tad er basically ekkert herna, en eg meina, matarbud :D Og hvad gerir Hanna annad en ad fara ad bjarga hriikalega vondum morgunmat. Tannig eg keypti mer riisabraud sem eg held ad hafi kostad 25kr islenskar, kann ekki aaalveg a gjaldmidillinn her. Meira svona skil ekkert i honum en hey, aukaatridi *blikkblikk* OG eg keypti mer Nutella sukkuladismjor... jeeeiiijjj morgunmaturinn hja mer verdur lovely. Nu tarf eg bara ad stela hnif. Svo var eg med fulla korfu af ohollu, kexi og sukkuladi og svona. Onnur af teim bordar ekki nammi og hin keypti 2 snickers og skiladi svo badum. Mooorall, tannig eg losadi mig vid nokkur, en helt nokkrum audvitad :P

gohh--- pabbi var ad hringja. Er einmitt ad segja honum ad eg er eiginlega lelegust herna, tad eru allir svo druullu godir, mer finnst tad ekkert voda gaman. Var a aefingu seinni partinn med stelpum bara. Spiludum leiki i lokinn. Janeeeiii nicht gut... Svo toku puttarnir minir uppa tvi i morgun ad breytast bara i blodrur. Alltieinu voru 3 puttar a haegri bara hvitir. Dautt skinn sem rifnadi svo, heevi skritid. Meiddi mig ekki en pirradi mig i taetlur. Tumalputtinn datt bara af og kominn nyr i stadinn, svona an grins. Er ogedslegt, er oll i daudu skinni. Jeij

ahh kallinn var ad segja ad tad lokadi eftir 5 min.. djooo...

eg sakna allra gedveikt mikid, gerist eiginlega aldrei af viti tegar eg fer til utlanda, en tetta er allt svo odruvisi ad eg er half tynd herna. Eeen skemmtilegir krakkar. Ensku strakarnir snillingar, allir strakarnir eru samt a odru hoteli.

en jaeja farin ad labba heim med tunga matarpokann minn :P hehe...

enginn a msn tegar eg var, nema athena.. midur min yfir tessu

SAKNA YKKUR HEEVI MIKID....
KISSIKISSIKISS oh eg er svo mikid muss.. hahaha vonlaust lyklabord btw :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 20:40:35 / Hannan

Sééþiiig ;*

Jææja, ég er þreytt og hálf löt. Búin að vera að stússast fyrir ferðina í allan dag. Týna svona til eitt og eitt, það er nú framför síðan í seinustu utanlandsferð. Þá byrjaði ég að pakka klukkan 11 um kvöldið og þurfti að vakna kl hálf 3 minnir mig, svaf í klukkutíma, ljómandi fínt. Núna er ég með allt svona semi tilbúið. Er reyndar ennþá að þvo, smá mistök í þvottamálunum, gerði mér ekki alveg grein fyrir að hver vél tekur nánast 2 tíma og þottur þarf víst að þorna. Amaazing.

Ef ég væri ekki svona þreytt og dösuð eitthvað þá væri ég líklega stressuð og spennt. En í augnablikinu er ég hvorugt. Þetta verður allavega stress dagur á morgun.
->Ég keyri sjálf til Rvk og skil bílinn eftir og tek svo flugrútuna (veit ekki kl hvað hún fer eða hvernig það allt virkar, svekk)
->Flug kl. 7:15 í fyrramálið til Köben
-> Ná í töskurnar, hitta Færeyinga einhverstaðar (vonandi að við finnum það)
->16:40 Flug til Vínar
->18:25 Komið til Vínar
-> 22:25 Flug til Koisce
-> 23:30 Komið til Koisce

Spennó. Semsagt ef ég týnist, þá látið þið lýsa eftir mér í Danmörku, Austurríki og Slóvakíu, jafnvel Íslandi líka þar sem ég gæti trúað mér til að klúðra þessu með flugrútuna, hehe :)

Annars er ég semsagt að fara í þessar margumtöluðu (hjá mér) æfingabúðir sem ég er búin að vera stressuð fyrir í margar vikur. Ég er nokkuð viss um að ég verði lang lélegust þarna, en ég meina það er stemmning, jú víst.
Ég verð á mjög slöppu hóteli (landsliðsþjálfarinn hefur komið þangað) og verð með annars stelpu í herbergi. Atli, ferðafélaginn, verður á öðru hóteli sem ég veit ekkert um. Svo eru tvær tveggja tíma æfingar á dag, morgunmatur klukkan 7:30, hádegismatur 12-13 og kvöldmatur 17-18. Af hverju er kvölmaturinn svona snemma? Ég dey þá bara á kvöldin á krúttlega lélega hótelinu, gaman að því :)

 ég í essinu mínu á vellinum!

 

Annars fór ég á dansiball á fimmtudaginn. Árshátíð MR með Miss Ragnheiður og Miss Steinunn. Það var bara ljómandi fínt. Skemmtilegra þegar maður þekkir aðeins fleiri og svona, mig vantaði FM tónlist að dansa við, lang skemmtilegast að hrista rassinn og þenja raddböndinn við eitthvað svoleiðis væl ;)

Annars var keyrt utan í mig á bílastæðinu fyrir utan, einhver beygla var að bakka og var svona cm frá bílnum mínum. Ég bíbaði og hún stoppaði, og ég horfði bara á hana, okkur fannst nokkuð augljóst að hún væri alltof nálægt mér. Neinei, hún heldur áfram og svo *dynk* fer í bílinn og keyrir svo áfram og annað *dynk* djööö. Ég bara "helduru að ég hafi verið að bíba á þig bara uppá flippið eða??" Eeen ótrúlegt þá sást ekkert á bílnum en ég er nú samt með allar upplýsingar um gelluna, leið eins og löggu þegar Steinnun og Heiða voru bara "Hanna fáðu kennitölu, biddu um skilríki!!"

Svo brunuðum við heim, stoppuðum í sjoppu þar sem gaur var að kaupa sér dótaboga og dótabyssu, heimtaði að borga kristalinn hans Jasonar og var síðan bara "og pulsuna hennar" (mína) og ég svona "ég er búin að borga" en hann kom aftur "og ég ætla líka að borga pulsuna hennar" hehe... svekkjandi það.

Ég þurfti að fara til fótakonu klukkan 8 á föstudagsmorgun, get nú varla sagt að ég hafi hoppað úr gleði framúr þegar Jason gat sofið áfram. Fleeh.

Einhverra hluta vegna varð ég ansi oft á vegi myndavéla kalla ballsins, af hverju sný ég mér ekki undan? Ég þarf að fara að æfa það. En þar sem þetta eru kjána myndir þá ætla ég að deila þeim með ykkur ;)


Þetta er klárleg sexy svipurinn minn, þess má geta að myndavélagaurinn fór alveg hreint í blístrandi bóner sökum þessa lúkks hjá mér enda er durex merkið ekki í horninu að ástæðulausu ;)


Þetta er ég eftir dágóða stund með ljósmyndaranum. Rakst á annan og var svo glöð að ég alveg gleymdi sexy lúkkinu. Ragnheiður þarf aftur á móti að taka mig í kennslustund í að setja hendur fyrir andlitið, enda er ég nú nýgræðingur í celeb-bransanum annað en hún.

Þennan kjánalega dreng þekki ég á aftur á móti ekki. Mér finnst ágætt að láta taka mynd af mér með honum því oft er talað um að ég geti ekki verið venjuleg á myndum, hann er sá eini sem ég veit að toppar mig every time ;) Annars er hann frægur rokkari eins og sést, ef þið skilduð ekki vita það.

[text under pictures is completely fictional and I hope it does no harm; Author] ;)

Soddan, nú gleymiði mér allavega ekki í vikunni. Og líka ef ég týnist í einhverri borg einhverstaðar á leiðinni, aldrei að vita. Allt getur gerst ef ljósmyndari verður á leið minni ;)

Ich liebe dich... und dich... und dich =*



» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 23:30:00 / Hannan

"bara henda einu kvikindi inn"

Þetta var hann Hólmsteinn að segja við mig rétt í þessu, stór hneykslaður á bloggleysi mínu. Sjálfur er kappinn með hörku blogg [holmsteinn.bloggar.is] (hann bað mig ekki að auglýsa sig - lofa ;))
En allavega þá virðist Ragnheiður vera búin að færa krafta sína annað, fannst hún ekki getað opnað sig nóg hér eða eitthvað.  Gott hjá henni, enda var hún nú líka nánast ein að blogga hér. En hún veerður nú að henda inn bloggi hér endrum og sinnum, aiight Heiða mín? (svört, i knoow ;)) Annars lítur út fyrir að ég og Karitas verðum kannski að fara að drita einhverju hér inn við og við, Lilja er náttúrulega svo active hérna að maður þarf varla að nefna það ;) Núna var Karitas t.d. að koma frá Lúxemborg og hefur klárlega djúsí shopping stories þaðan :P

Annars á ég frekar erfitt með að skrifa, ég er lömuð í höndunum. Var að koma úr body pump sjáiði til. Þar sem ég fór ein nota bene, engin Birgitta og engin Lára. Ég held ég hafi tekið aðeins of þungt í sumu, miðað við sársaukann sem ég fékk daginn eftir eftir seinasta tíma, þá á ég ekki von á góðu á morgun :$ Svo fórum ég og Birgitta í killer spinning tíma í gær, ruugl.
En landsliðsþjálfarinn minn hann Kenneth vill sjá mig með Arnold Schwarzenegger fætur eftir 6 mánuði. Það er nú þegar liðinn mánuður og ég meina, get ekki sagt annað en að ég er komin veeel á leið!! ;) júvíst!!

Skoh, ég er aalveg að ná honum! Vil nú ekki sjá fæturnar á honum á seinni myndinni. Annars á ég "því miiður" ekki mynd af mössuðum leggjum mínum, miður mín ;)

Nú var ég að koma heim af killer tveggja tíma æfingu. Ég held ég þurfi aðeins að róa mig í vínarbrauðunum, er í very lélegu formi.

Á fimmtudaginn þá er ég að fara á árshátíð MR. Ég bauð Ragnheiði og Steinunni með, þar sem GusGus er að spila og þær fýla þá :) Á móti sól er líka að spila og ég fýla þá ;) Annars stefnir allt í að ég fari bara nakinn á þetta ball, sem er bara djamm útaf fyrir sig. Þetta verður allavega very gaman, svo tökum við Jason og Jóhönnu með okkur heim ;Þ

Annars er ég að skíta á mig í skólanum, deyja úr stressi fyrir Slóvakíu, deyja úr löngun til að fara til London fyrir jól - sem veltur allt á prófatöflunni sem kemur hvenær?

Vona að þú hafir svitnað á efri vörinni Róbert minn. Ég sit allavega sveitt hér og stefni á sturtuna, þið þurftuð víst að vita þetta!

Af hverju get ég ekki bloggað svona skemmtileg málefnaleg blogg? Leiðinlegt.

Ætla samt að standa mig aðeins betur í þessu hérna :) Karitas er ekki eins spennt í að halda þessu við eins og ég. 

ógeðslega mikið bæj skiluruh?! *svöl* 

=* 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 23:43:30 / Ragnheiður

nýtt nýtt nýtt!

þar sem ég er svo dugleg í bloggheimum þá hef ég startað sólóferli.

pinku kjánalegt, en þetta verður allt í lagi!

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 30